Lög Knattspyrnufélags ÍA
Samþykkt á aðalfundi þann 19. nóvember 2009
1. grein
Félagið heitir Knattspyrnufélag ÍA, skammstafað KFÍA. Aðsetur þess og heimili er á Akranesi.
2. grein
Markmið og tilgangur félagsins er að iðka knattspyrnu, efling knattspyrnu- æskulýðs- og félagsmála svo og að stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar knattspyrnu á Akranesi.
3. grein
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:
Sjá iðkendum innan vébanda KFÍA fyrir góðri knattspyrnuþjálfun vel menntaðra þjálfara.
Standa fyrir og taka þátt í knattspyrnumótum.
Halda uppi fræðslu og vönduðu félagslífi þar sem áhersla er lögð á heilbrigt líf og vinna gegn vímuefnanotkun.
Leggja áherslu á fagleg og góð vinnubrögð í uppeldisstarfi sínu, fræðslu og þjálfun.
Standa fyrir nauðsynlegri uppbyggingu íþróttamannvirkja eða rekstri þeirra eftir því sem ákveðið er hverju sinni.
4. grein
Félagi getur hver sá orðið sem óskar þess enda greiði hann félags og/eða iðkendagjald. Sérstakt félagatal skal haldið af stjórn félagsins. Tilkynningu um félagsaðild og úrsögn úr félaginu skal skila skriflega til stjórnar félagsins. Árgjald félagsmanna skal ákveðið á aðalfundi félagsins.
5. grein
Með stjórn félagsins fara:
Aðalfundur.
Stjórn félagsins.
Milli aðalfunda fer stjórn félagsins með stjórnun þess innan ramma laga félagsins. Undir stjórn félagsins starfa tvö svið: Afrekssvið annars vegar og uppeldissvið hins vegar. Stjórn félagsins setur sviðum félagsins starfsreglur og afmarkar starfssvið þeirra. Stjórn félagsins ræður framkvæmdastjóra félagsins og aðra starfsmenn þess þ.m.t. þjálfara og setur þeim erindisbréf. Stjórn félagsins annast gerð fjárhagsáætlunar fyrir félagið, fer með allar fjárreiður þess og staðfestir eða samþykkir alla samninga sem gerðir eru í nafni félagsins.
6. grein
Stjórn félagsins skipa sjö fulltrúar kjörnir á aðalfundi: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari, meðstjórnandi og formenn afreks- og uppeldissviðs. Jafnframt skal kjósa tvo varamenn stjórnar. Þá skal á aðalfundi kjósa fjóra fulltrúa til viðbótar annars vegar í afrekssvið og og hins vegar í uppeldissvið. Formaður félagsins, formaður afrekssviðs og formaður uppeldissviðs skulu kosnir sérstaklega, en stjórn félagsins skiptir að öðru leyti með sér verkum
7. grein
Aðalfundur hefur æðsta ákvörðunarrétt í öllum málefnum félagsins. Skal hann haldinn eigi síðar en 20. febrúar ár hvert. Til fundarins skal boða með a.m.k. einnar viku fyrirvara og skal fundurinn auglýstur með opinberum hætti með auglýsingu og á heimasíðu félagsins. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað og a.m.k. 20 félagar mæta á fundinn. Ef ekki mæta 20 félagar á fundinn skal boða til nýs fundar og telst hann löglegur ef löglega er til hans boðað.
Á milli aðalfunda skal starfandi þriggja manna kjörnefnd sem gerir tillögu til aðalfundar um skipun stjórnar og sviða.
8. grein
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar félagsins.
Ársreikningur félagsins.
Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir komandi rekstrarár.
Kosning fjögurra fulltrúa í stjórn og tveggja til vara.
Kosning formanns afrekssviðs.
Kosning formanns uppeldissviðs.
Kosning fjögurra fulltrúa í afrekssvið félagsins og tveggja til vara.
Kosning fjögurra fulltrúa í uppeldissvið félagsins og tveggja til vara.
Kosning formanns stjórnar.
Kosning tveggja endurskoðenda félagsins.
Ákvörðun um árgjald.
Lagabreytingar.
Önnur mál.
Á aðalfundi félagsins ræður einfaldur meirihluti úrslitum mála, nema þegar um er að ræða tillögur til breytinga á lögum félagsins, en þær verða að samþykkjast af 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna.
Kosningar skulu vera skriflegar, ef þess er óskað. Séu atkvæði jöfn við stjórnarkjör skal kosning endurtekin. Verði atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir skráðir félagar sem greitt hafa árgjald til félagsins og eru skuldlausir við það. Þeir eru jafnframt kjörgengir til stjórnarstarfa með atkvæðisrétt, tillögurétt og málfrelsi á fundinum.
9. grein
Aukaaðalfund má halda ef stjórn félagsins telur þess þörf eða ef ¼ skráðra félaga óskar eftir því. Aukaaðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað sbr. 7. gr. Aukaaðalfundur getur tekið ákvörðun um öll málefni félagsins þ.m.t. lagabreytingar. Stjórnarkosning skal þó ekki fara fram á aukaaðalfundi nema rétt kjörin stjórn sé af einhverjum ástæðum óstarfhæf.
10. grein
Reikningar félagsins miðast við almanaksárið og skulu þeir endurskoðaðir og liggja frammi á skrifstofu félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
11. grein
Heimilt er stjórn félagsins að vísa hverjum þeim úr félaginu er brýtur lög félagsins, gerist sekur um óprúðmannlega framkomu eða vinnur gegn hagsmunum þess,. Ákvörðun stjórnar skal lögð fyrir næsta aðalfund til staðfestingar.
12. grein
Félagið skal vera aðili að Íþróttabandalagi Akraness (ÍA) og leika undir nafni þess. Búningur félagsins skal vera gul treyja, svartar buxur og svartir sokkar.
13. grein
Tillaga til slita á Knattspyrnufélagi ÍA þarf samþykki 4/5 hluta atkvæðisbærra fulltrúa á aðalfundi eða aukaaðalfundi félagsins.
14. grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða aukaaðalfundi og þarf til þess samþykki 2/3 hluta fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund eða aukaaðalfund. Samþykki 2/3 hlutar aðalfundarmanna er heimilt að taka fyrir á aðalfundi eða aukaaðalfundi tillögu um breytingu á lögum félagsins.
15. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.