8. mars 2010
ÍA semur við þrjá leikmenn
Þrír leikmenn hafa nú skrifað undir samninga við félagið á síðustu dögum. Allir samningarnir eru til ársins 2012.
Andri Adolphsson fæddur ´92, kom inní meistarflokkshópinn á síðasta ári og spilað alls 11 leiki í 1.deildinni. Andri er gríðalega leikinn og lipur leikmaður sem margir hafa líkt við Karl nokkurn Þórðarson. Mikið efni þar á ferð sem vert er að fylgjast með í framtíðinni.
Einar Logi Einarsson, fæddur ´91, lykilmaður í liði 2.flokks. Sterkur miðjumaður, sem býr yfir góðri yfirsýn, tækni og leikskilning. Einar Logi hefur vaxið mikið í vetur á sínu fyrsta vetri í m.fl. hópnum. Einar er einmitt yngri bróðir fyrirliðans Heimis Einars.
Óli Valur Valdimarsson, fæddur ´90, kom eins og Andri inní meistarflokkshópinn í fyrrasumar og spilaði alls 15 leiki. Óli Valur skoraði einmitt eitt af mikilvægustu mörkum fyrrasumars er hann tryggði ÍA sigurinn á lokamínútum í 0-1 sigir ÍA á KA. Óli Valur er tækintröll mikið, með stórhættulegan vinstri fót.
Allir strákarnir eiga það sameiginlegt að vera efnilegir og hafa sýnt það í vetur að þeir ætla sér stóra hluti í boltanum. En eitt er það að vera efnilegur og annað að verða góður.
Stjórn félagsins er mjög ánægt með að hafa tryggt sér krafta þeirra á næstu 3 árum. Vonir standa til að fleiri ungir og upprennandi leikmenn skrifi undir samninga við félagið á næstu dögum og vikum. En það er liður í enduruppbyggingu félagsins á leið þess í fremstu röð.
Til baka
|