7. mars 2010
Fréttamolar úr starfinu
Nokkrir fréttamolar úr starfinu:
Sölvi. Gylfa, Gísli Brynjars, Eggert Karls og Arnþór Kristins eru allir búnir að jafna sig af meiðslum og eru byrjaðir að æfa með liðinu aftur. Árni Thor er að byrja að geta hlaupið, en á einhverjar vikur í að byrja í bolta aftur. Hjörtur Hjartar verður frá keppni í um 2 vikur í viðbót. Guðmundur Guðjóns er á batavegi, vonir standa til að hann losni úr gifsi eftir 2-3 vikur. Heimir Einars ætti að vera orðinn klár í leikinn á móti Stjörnunni næstkomandi laugardag, en blokkaður spjaldliður gerði það að verkum að hann missti af 2 síðustu leikjum liðsins í deildarbikarnum.
2. mars sigruðu strákarnir úr 2.flokki jafnaldra sína í Stjörnunni 1-3 í Garðabæ.Er þeir í 4.sæti í Faxanum með 10 stig eftir 6 leiki.
4.mars gerðu stelpurnar í 3.flokki jafntefli við FH í Faxanum 2-2, leikið var í Akraneshöllinni. Var þetta 1.leikur þeirra í Faxanum.
6. mars unnu svo stelpurnar í 4.flokki Hauka 2-1, þar sem sigurmarkið kom á lokamínútu leiksins.
Sama dag áttust við Þróttur og ÍA í 2.flokki kvenna, stelpurnar okkar sigruðu örugglega 0-5. Þær tróna á toppnum í Faxanum með 12 stig úr 5 leikjum. En sigurleikur þeirra gegn Keflavík, 6-0, hefur verið felldur út þar sem Keflavík dróg lið sitt úr keppni.
Til baka
|