7. mars 2010
Og enn er það sigur....!
Skagamenn lögðu Fjarðarbyggð í deildarbikarnum í kvöld með þremur mörkum gegn einu. Staðan í hálfleik 2-0 en mark frá sitt hvoru liðinu komu í seinni hálfleiknum.
ÍA-liðið byrjaði af feikna krafti og hver sóknin af annarri buldi á ausfirðingunum. Strax á 3. mínútu áttu heimaenn að fá vítaspyrnu en ekki varð þeim að þeirri ósk sinni. Hins vegar kom Andri Júlíusson með fína fyrirgjöf á 7. mínútu sem nokkrir Skagamenn gátu náð - en það var hinn sjóðheiti Ragnar Leósson sem skoraði fyrsta markið. Strax aftur á 10. mínútu kom laglegt spil upp hægri kantinn og Aron Ýmir sendi fína sendingu fyrir sem Óli Valur kláraði laglega. Tvö mörk á fyrstu tíu mínútunum og útlitið ekki gott fyrir gestina. Ágætis spila sást hjá Skagamönnum næstu 15 mínúturnar - en eftir það skekktist fókusinn eitthvað þannig að úr varð fremur tilviljunarkenndur leikur - án þess þó að gestirnir ættu einhver færi. Igor átti ágætis skot rétt framhjá á 35. mínútu og gestirnir fengu sitt eina færi á 40. mínútu þegar ágætt skot þeirra var skallað frá opnu markinu. Í seinni hálfleik komu okkar menn heldur freðnir inn í leikinn en austfirðingarnir sóttu heldur í sig veðrið. Á 48. mínútu átti Andri Adolphsson, sem hafði komið inn á í hálfleik, gott tækifæri sem fór forgörðum og Ragnar Leósson þar rétt á eftir. Sprækir Fjarðarbyggðarmenn áttu síðan fínt færi en skot þeirra fór í stöngina og í lúkurnar á Páli Gísla. Andri Júlíusson var rétt við að komast í gegn en náði ekki að stýra boltanum í netið úr þröngu færi - en í næstu sókn minnkuðu gestirnir muninn með fínu marki Hilmars nokkurs - ungs og efnilegs leikmanns að austan. Andri Júl. átti nokkrar rispur á hægri kantinum og eftir eina slíka átti hann fína sendingu á Ragnar Leósson, sem bætti enn við marki. Það urðu lokatölur og ágætur sigur í höfn.
Sem fyrr segir voru fyrstu 10 mínútur Skagliðsins verulega góðar, næstu 15 mínútur alveg bærilegar - en eftir það var leikur liðsins brokkgengur - enda stíft æft og leikmenn heldur þungir margir hverjir. Það er svo sem í lagi þar sem Þórður Þórðarson veit mæta vel hvenær það er sem mikilvægast er að liðið gangi á öllum sýlendrum! Vörnin var í heild prýðileg með Pál Gísla öruggan fyrir aftan. Aron sprækur og þeir Ísleifur og Andri Geir öruggir, með Guðjón traustan sér við hlið. Þeir Igor og Arnar Már hafa oft verið skarpari og eiga eflaust mikið inni. Óli Valur heldur áfram að bæta sig og Andir Júl er baneitraður á kantinum þegar sá gállin er á honum. Aðrir leikmenn stóðu ágætlega fyrir sínu og eykst sjáflstraust með hverjum leiknum. Áfram ÍA!
Liðið:
Páll Gísli
Aron Ýmir Andri Geir Ísleifur Guðjón Sv.
Igor (Ragnar Gunn.) Arnar Már (Einar Logi)
Ragnar Le.(Emil Sævars)
Andir Júl.(Ívar) Fannar Freyr (Gísli Freyr) Óli Valur (Andri Adolphs)
Meiðslalistinn:
Hjörtu Júl.
Heimir (tognun)
Arnþór
Guðmundur B.
Árni Thor
Til baka
|