27. febrúar 2010
Sigur gegn Haukum
Pepsídeildar-lið Hauka laut í lægra haldi fyrir ÍA í deildarbikarnum í dag. Lokatölur 4-3, sem ekki gefa endilega rétta mynd af gangi leiksins - sem gengur þó út á að það lið vinnur sem skorar fleiri mörk. Í hálfleik var staðan 2-2.
Leikurinn var rétt hafinn þegar Ragnar Leósson vippaði boltanum laglega á u.þ.b. 25 metra færi yfir markvörðinn og staðan 1-0. Eftir það voru það þó Haukarnir sem réðu ferðinni. Þeir jöfnuðu svo leikinn á 20. mínútu með glæsilegu skoti. Þrátt fyrir að Haukarnir réðu nokkuð ferð leiksins náðu Skagamenn ágætri sókn á 38. mínútu - Ragnar Leósson bjó til úrvals sókn sem að Ívar Haukur Sævarsson rak endahnútinn á og setti boltann í netið. Haukarnir jöfnuðu svo upp úr aukaspyrnu til hliðar við vítateiginn, þá renndi Arnar Gunnlaugsson boltanum á samherja sinn sem fékk næði til að smella tuðrunni í netið. Jafnt í hálfleik þar sem Pepsi-deildar lið Hauk var sterkari aðilinn.
Í seinni hálfleik mættu Skagamenn heldur sprækari. Á fyrstu 10 mínútunum fengu þeir tvö ágætis marktækifæri, en það var ekki fyrr en á 62. mínútu sem Ragnar Leósson bætti við þriðja marki liðsins og á þeirri 70. bætti Arnar Már við fjórða markinu, eftir frábæra sókn Skagamanna. Eftir það sóttu Haukarnir í sig veðrið án þess þó að skapa sér nein veruleg marktækifæri en leikur liðsins varð heldur fábrotinn efitr að Arnar Gunnlaugsson fór út af í hálfleik. Þeir fengu hins vegar gott færi á 85. mínútu og þriðja mark Haukanna leit dagsins ljós. Eftri eilítinn atgang Hafnfirðinganna á síðustu mínútunum rann leikurinn út í sandinn með sigri Skagamanna 4-3.
Ragnar Leósson og Arnar Már voru manna frískastur í Skagaliðinu, en þeir Andri geir og Ísleifur skiluðu sínu í miðju varnarinnar. Páll Gísli verður ekki sakaður um mörkin og þeir Óli Valur og Ívar voru líflegir á köflum. Ánægjulegt var hins vegar að sjá að Skagamenn höfðu talsverða breidd umfram Pepsídeildarliðið og þeir leikmenn sem komu inn á gáfu ekki tommu eftir. En sem sagt - ágætur sigur og jafnframt 7. sigur Skagamanna í jafn mörgum leikjum það sem af er ári!
Í gær - föstudag lék B-lið ÍA við Tindastól og tapaði 1-2. Það var Andri Júlíusson sem skoraði mark Skagamanna úr vítaspyrnu.
Liðið:
Páll Gísli
Aron Andri Geir Ísleifur Guðjón
Arnar Már Igor (Einar Logi) Ragnar Leóss.
Ívar (Andri A.) Fannar Freyr (Ragnar G.) Óli Valur (Emil S.)
Meiðslalistinn:
Guðmundur Böðvar - ristarbrotinn
Heimir Einarsson - bakmeiðsl
Arnþór Ingi - ökkli
Árni Thor- hnémeiðsl
Sölvi G. hnémeiðsl
Gísli Freyr hnémeiðsl
Leikbann:
Andri Júlíusson
Til baka
|