Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
26. febrúar 2010

Ragnar Leósson skrifar undir 2ja ára samning við ÍA

Hinn ungi og stórefnilegi leikmaður Ragnar Leósson skrifaði í dag undir nýjan 2ja ára samning við ÍA. Ragnar lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk árið 2007 og hefur síðan verið í leikmannahópi meistarflokks. Ragnar lék 20 leiki með meistaraflokki á síðast liðnu sumri og skoraði 4 mörk, öll í seinni umferðinni.  Ragnar, sem er enn löglegur í 2.flokki, er klárlega að stimpla sig inn sem einn af burðarrásunum í ungu og bráðefnilegi liði Skagamann undir stjórn Þórðar Þórðarsonar.

Knattspyrnufélag ÍA er mjög ánægt með að hafa náð að framlengja við Ragnar og vonast til þess að geta á næstu vikum tilkynnt um fleiri samninga þar sem ungu strákarnir okkar setja stoltið ofar öðrum hlutum.



Til baka