Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
25. febrúar 2010

"Verð vonandi tilbúinn til leiks fyrir Íslandsmótið" sagði Guðmundur Böðvar Guðjónsson

"Ég er ristabrotinn á á hægri fæti og verð frá í a.m.k. tvo mánuði." sagði Guðmundur Böðvar Guðjónsson en hann varð fyrir því óhappi fyrir rúmum tveimur vikum að ristabrotna.

Ég var búinn að finna fyrir eymslum í ristinni í 2-3 vikur. Síðan í leiknum gegn Leifri/Dalvík var ég senda boltan og fann þá allt í einu fyrir sárum verk og vissi að eitthvað hefði gefið sig. En þetta hefur sjálfsagt verið að gefa á síðustu vikum.  Ég stefni að því að verða klár í slaginn þegar Íslandsmótið hefst í maí. Gipsið var tekið af mér í gær og ég er á hækjum og má ekki stíga í löppina í 4-5 vikur. Eftir það hefst síðan endurhæfingin sem vonandi gengur að óskum." sagði Guðmundur Böðvar Guðjónsson



Til baka