Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
4. febrúar 2012

Stórskemmtilegur leikur gegn ÍBV sem endaði með 5-5 jafntefli.

Skagamenn mættu liði ÍBV í dag í leik um 5. sætið í fotbolti.net mótinu en leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Óhætt er að segja að um flugeldasýningu hafi verið að ræða en 10 mörk litu dagsins ljós. Skemmtu fjölmargir áhorfendur sér vel á leiknum þó þjálfurum liðanna hafi væntanlega ekki þótt varnarleikurinn upp á marga fiska.

 

Byrjunarlið heimamanna var þannig skipað að: Páll Gísli var í markinu, Óli Valur, Ármann Smári, Kári Ársæls og Guðmundur Böðvar voru í vörninni. Á miðjunni voru Arnar Már, Mark Doninger með þá Andra Adolphs og Gary Martin á köntunum. Frammi voru Garðar Gunnlaugs og Jón Vilhelm.

 

Leikurinn byrjaði fjörlega eins og tölurnar gefa til kynna en á 5. mín mistókst Palla að hreinsa frá markinu svo boltinn barst til Tryggva Guðmundssonar og átti hann gott skot sem Palli varði vel aftur fyrir endamörk. Skagamenn áttu síðan flotta sókn á 15. mín þegar þeir Gary Martin og Óli Valur áttu flott samspil upp vinstri kantinn sem endaði með fyrirgjöf á kollinn á Jón Vilhelm en markvörður ÍBV varði vel frá honum. Andartökum síðar kom sending inn fyrir vörn heimamanna sem framherji ÍBV afgreiddi snyrtilega yfir Palla í markinu, 0-1 fyrir ÍBV.

Skagamenn sóttu nokkuð eftir þetta og fékk Mark Doninger upplagt marktækifæri á 20. mín leiksins sem var varið frá honum en Mark hefði getað gefið boltann á Andra Adolphs sem var í enn betri stöðu í teignum.

Heimamenn áttu flotta sókn á 30 mín leiksins þegar Andri Adolphs átti góða fyrirgjöf á ennið á Jóni Vilhelm sem skallaði hárfínt yfir markið. Skagamenn héldu áfram að sækja á þessum kafla og á 32.mín stormaði Gary Martin upp vinstri kantinn og átti gott skot sem markvörður ÍBV varði vel.

Gestirnir hefðu getað bætt við forystuna mínútu síðar þegar framherji þeirra slapp í gegn lék á Palla í markinu en skaut laflausu skoti á markið sem Kári Ársæls náði að hreinsa frá af marklínunni. ÍBV bættu við forystuna skömmu síðar eftir klafs í teignum með marki frá Tryggva G., höfðu einhverjir áhorfendur það á orði að brotið hefði verið á Óla Val í aðdragandanum að markinu.

Ekki skal fullyrt um það hér, en þar við sat í hálfleik og staðan 0-2 fyrir ÍBV.

 

Þórður Þ. þjálfari ÍA gerði breytingar á sínu liði í hálfleik en inn á komu þeir Árni Snær í markið, Einar Logi fór í vinstri bakvörðinn en út af fóru Páll Gísli og Garðar Gunnlaugs.

 

Gestirnir bættu við forystuna á 50. mín leiksins, þegar stungusending barst í gegnum vörn heimamanna og eftirleikurinn auðveldur fyrir framherja gestanna, staðan orðin 0-3 fyrir ÍBV.

 

Skagamenn náðu að minnka muninn á 52. mín leiksins en þá kom fyrirgjöf frá hægri vængnum sem Jón Vilhelm náði að stýra í markhornið fjær, laglegt mark.

Miðjumaðurinn Mark Doninger fékk andartökum síðar gott færi þegar hann átti hörkuskot af vítateigslínunni sem fór rétt yfir markið. Heimamenn minnkuðu muninn enn frekar stuttu síðar og þar var Jón Vilhelm aftur að verki með gull af marki – tók hann við boltanum á miðju vallarins, lék með hann upp völlinn, tók þríhyrning við samherja og afgreiddi hann viðstöðulaust upp í markvinkilinn, glæsilegt mark.

Skagamenn voru ekki hættir og þeir náðu að jafna leikinn stuttu síðar, en þá slapp Gary Martin í gegn um vörn gestanna og afgreiddi boltann örugglega í markið. Vestmannaeyingar tóku forystuna síðan aftur á 84. mín en þá skoraði Tryggvi G. laglegt mark beint úr aukaspyrnu, staðan því orðin 3-4 fyrir gestina. Skagamenn jöfnuðu leikinn í annað sinn mínútu síðar og var þar að verki Gary Martin með skoti af stuttu færi eftir að hafa sloppið í gegnum vörn ÍBV.

Markaveislan var ekki búin en gestirnir náðu forystunni aftur á 88. en þá fullkomnaði Tryggvi G. þrennu sína með skalla af stuttu færi - staðan orðin 4-5 fyrir gestina frá Vestmannaeyjum.

 

Þórður Þ. þjálfari ÍA hafði gert nokkrar breytingar á sínu liði þegar þarna var komið við sögu en inn á höfðu komið þeir Hallur Flosa, Eggert Kári, Heimir Einars og Dean Martin.

 

Dean-ó átti kröftuga innkomu og náði að prjóna sig í gegn um vörn gestanna á 89. mín leiksins tók skot sem markmaður ÍBV náði ekki að halda en varnarmenn gestanna náði að bægja hættunni frá á síðustu stundu.

Heimamenn voru ekki búnir að gefast upp þó í uppbótartíma væri komið og náði Deanó að jafna leikinn á 93.mín leiksins með góðu skoti úr teignum. Þar við sat og lokatölur leiksins urður því 5-5!

 

Leikurinn var eins og áður sagði þrælgóð skemmtun frá upphafi til enda, þótt varnarleikur beggja liða verði seint talinn til útflutnings.

Heimamenn sýndu þó mikinn karakter, náðu að jafna leikinn eftir að hafa lent 0-3 undir og sýndu á löngum stundum frábæran sóknarbolta með þá Gary Martin og Jón Vilhelm fremsta í flokki að þessu sinni. Einnig var ánægjulegt að sjá Heimi Einars. spila sínar fyrstu mínútur með liðinu í langan tíma og er hann vonandi óðum að ná fyrri styrk. Varamaðurinn Dean Martin kom einnig með mikinn kraft inn í leik liðsins á lokamínútunum og uppskar verðskuldað jöfnunarmark á síðustu sekúndu leiksins.

 

 

 



Til baka