21. janúar 2012
Markalaust jafntefli gegn Breiðablik.
Skagamenn mættu í dag liði Breiðabliks í öðrum leik sínum í fotbolti.net mótinu en leikurinn fór fram í Fífunni í Kópavogi. Til að gera langa sögu stutta þá þótti leikurinn tíðindalítill og færin létu á sér standa en lokatölur leiksins urðu 0-0.
Blikarnir áttu hættulegasta færi leiksins en það kom í síðari hálfleik þegar framherji þeirra átti skot í þverslánna.
Bretarnir Gary Martin og Mark Doninger léku með liðinu að nýju í dag en þeir komu til móts við liðið aftur nú í síðustu viku eftir vetrarfrí sitt á Englandi. Arnar Már spilaði einnig sinn fyrsta leik fyrir liðið í langan tíma en hann er að stíga upp úr meiðslum eins og fleiri leikmenn liðsins.
Næsti leikur ÍA verður gegn Keflavík næstkomandi laugardag og verður það jafnframt síðasti leikur liðsins í riðlakeppninni sjálfri.
Til baka
|