Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
20. janúar 2012

Skagamenn leika gegn Breiðablik kl. 11.00 í Fífunni laugardaginn 21.janúar.

Á morgun laugardag munu Skagamenn leika sinn annan leik í fotbolti.net mótinu en leikurinn fer fram í Fífunni í Kópavogi og hefst hann kl. 11.00.

 

Eins og kunnugt er orðið lék ÍA liðið sinn fyrsta leik í mótinu um síðustu helgi gegn FH þar sem 4-1 sigur vannst. Það má búast við flottum leik á morgun enda Breiðablik með hörkulið en þeir unnu einnig um síðustu helgi lið Keflavíkur en lokatölur í þeim leik urðu 2-1 fyrir Blikanna.

 

Við hvetjum því alla stuðningsmenn til að taka daginn snemma og fjölmenna á leikinn í Fífunni.

 



Til baka