19. janúar 2012
Íslandsbanki og ÍA endurnýja og auka samstarf sitt

Íslandsbanki og Knattspyrnufélag ÍA hafa undirritað samkomulag til næstu þriggja ára þar sem samstarf þessara aðila er endurnýjað og aukið töluvert. Íslandsbanki hefur verið traustur stuðningsaðili félagsins síðustu ár og hefur samstarfið gengið afar vel. Íslandsbanki hefur m.a. boðið gesti velkomna í ÍA-hornið í bankanum og veitt verðlaun fyrir getspaka Skagamenn. Gísli Gíslason, formaður Knattspyrnufélags ÍA segir að félagið sé afar þakklátt traustum stuðningi Íslandsbanka við knattspyrnuna á Akranesi og þar fari saman markmið stjórnar félagsins og vilji bankans til að stuðla að öflugu og árangursríku unglinga- og afreksstarfi. Framundan séu stór verkefni og að liðveisla Íslandsbanka skipti þar miklu máli. Magnús Daníel Brandsson, útibússstóri Íslandsbanka á Akranesi sagði að eins og knattpyrnufélagið væri Íslandsbanki í mikilli sókn á Akranesi og því færi vel á því að þessir aðilar ynnu saman að góðum málefnum. Íslandsbanki hefði stutt knattspyrnufélagið á síðustu árum og að ánægjulegt væri að bankinn bætti í þann stuðning samfélaginu á Akranesi til heilla.
Til baka
|