19. janúar 2012
Björn Tryggvason allur
Enn er höggvið skarð í raðir Skagamanna við andlát Björns Tryggvasonar, sem um áratugi var traustur og góður stuðningsmaður knattspyrnunnar á Akranesi. Björn var öflugur liðsmaður og bóngóður þegar hann var beðinn um viðvik fyrir knattspyrnufélagið. Margan greiðann gerði hann félaginu þó svo að ekki væri hann að gera mikið úr því eða ætlast til sérstakra þakka. Akstur með leikmenn, liðsinni í tryggingamálum, uppsetning auglýsingaspjalda og margt fjölmargt fleira vann hann glaður í þágu félagsins sem hann studdi og hverju handtaki var sinnt af ánægju og gleði. Honum eru færðar verðskuldaðar þakkir og viðring nú við leiðarlok. Það var ætíð liflegt í kringum Björn og þegar spjallið beindist að knattspyrnunni var hann aldeilis ekki skoðanalaus – ekki síst um bræður sína frændur og frænkur sem gerðu garðinn frægan með Skagaliðinu og einn frændi hans gerir enn. Þegar vel gekk brosti hann sínu breiðasta og fór mikinn en í andstreymi var hann kankvís óspar á það sem betur mátti fara – einkum hjá þeim sem stóðu honum næst. Brá þar fyrir hreinskiptu og umbúðalausu tali Strandamannsins. En umfram allt vildi Björn öllum vel og sýndi það ávallt í verki því hjarta hans var hýtt. Hann vann sitt starf á Akraborginni forðum og hjá Speli ehf. og síðast hjá Vátryggingafélagi Íslands af einstökum sóma og lipurð svo eftir var tekið. Það er söknuður og eftirsjá af vini mínum Birni Tryggvasyni. Hann veiktist á vordögum siðasta árs og eftir góða von um bata þá sló í bakseglin og nú er kveðjustund. Það er með djúpri þökk og eftirsjá sem Björn er kvaddur. Eiginkonu hans, Helgu Bjarnadóttur, börnum þeirra og fjölskyldu færir Knattspyrnufélag ÍA hjartans samúðarkveðjur og huggunarorð, en Björns verður minnst fyrir vináttu hans, verk og liðsinni. 
Gísli Gíslason,
formaður stjórnar
Knattspyrnufélags ÍA.
Til baka
|