Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
2. september 2010

4.flokkur kvenna í úrslitakeppni Íslandsmótsins

Stelpurnar í 4.flokki hafi staðið sig með miklum sóma í sumar og nú á dögunum tryggðu þær sér sæti í úrslitariðli Íslandsmótsins er þær unnu Stjörnustelpur 3-2 á Akranesvelli.

Leikið verður um helgina og eru mótherjarnir Breiðablik, Fylkir og KFR. Stelpurnar ráðast strax á garðinn þar sem hann er hæðstur en fyrsti leikur þeirra er gegn Breiðablik á morgun föstudag.

 

Breiðablik-ÍA föstudag kl: 16:30 Smárahvammsvöllur

ÍA-Fylkir laugardag kl: 16:30 Akranesvöllur, leikurinn verður í beinu framhaldi af leik meistarflokks gegn Gróttu.

KFR-ÍA sunnudagur kl: 14 Helluvöllur.

 

Við óskum stelpunum alls hins besta í keppninni.

Áfram Skagamenn!



Til baka