Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
2. september 2010

Tippleikur Íslandsbanka og ÍA

Næsti heimaleikur ÍA verður leikinn á laugardag, en þá koma Gróttumenn í heimsókn. Getraunaleikur Íslandsbanka og KFÍA heldur að sjálfsögðu áfram og þrátt fyrir mikið jafnteflissumar er alltaf jafn mikil stemming í útibúinu hjá Magnúsi D. Brandssyni útibústjóra og samstarfsfólki hans fyrir leiki.

 

Starfsmenn Íslandsbanka hefur ákveðið að klæðast IA-treyjum á leikdegi eða á föstudegi ef heimaleikur er um helgi. Frábær þátttaka hefur verið í leiknum í sumar og ánægjulegt hvað margir hafa tekið þátt.

 

Þessa vikuna verður nýji ÍA-búningur í verðlaun fyrir þann sem tippar á rétt úrslit. Að vanda verða dregnir út 5 tippara sem fá 2 miða hver á leikinn gegn Gróttu.

 

Nú er bara að skella sér í Íslandsbanka og tippa og mæta svo á völlinn!

 

Íslandsbanki og ÍA, skemmtilegt samstarf!



Til baka