Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
1. september 2010

Verður Lárus Orri kallaður til leiks ?

Þrír Skagamenn taka út leikbann gegn Gróttu á laugardaginn. Það eru þeir Andri Geir Alexandersson, Arnar Már Guðjónsson og Guðmundur Böðvar Guðjónsson.

"Það er vissulega slæmt að missa þrjá leikmenn í bann í einum og sama leiknum, en það kemur maður í manns stað. Ég ber fullt traust til strákanna sem koma munu inn í liðið gegn Gróttu." sagði Þórður Þórðarson þjálfari. "Þá er einnig mjög líklegt að ég kalli í Lárus Orra Sigurðsson að norðan til að koma í leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Gróttu. Heimir Einarsson hefur æft með okkur í vikunni og er hann óðum að ná sér eftir höfuðhöggið sem hann fékk gegn Njarðvíkingum syðra. Hann mun verða í leikmannahópnum á laugardaginn.

Þórður sagði að það væri sama upp á teningnum hjá þeim fyrir leikinn gegn Gróttu og í síðustu leikjum. Dagsskipunin væri sigur og komast eins ofarlega í stigatöflunni og hægt er. En Gróttumen væru sýnd veiði en ekki gefin. Þeir eru berjast fyrir sæti sínu í deildinni og munu örugglega berjast fyrir stigunum. Þannig að þetta gæti orðið baráttuleikur. Skagamenn unnu öruggan sigur í fyrri leiknum 4:1 á Seltjarnanesinu

2 flokkur sigraði Val í á Akranesvelli í kvöld 2:0. Var þetta þriðji sigurleikur Skagamanna í röð.  Skagsmenn eru nú komnir í þriðja sæti í 2 flokki með 22 stig



Til baka