Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
29. ágúst 2010

"Igor Pesic stóð ekki undir væntingum"

"Igor Pesic fékk tilboð frá liði í heimalandi sínu í Serbíu um leika með þeim í vetur og við riftum því samningi hans við ÍA svo hann gæti gengið frá félagaskiptum fyrir mánðarmótin áður en leikmannamarkaðrinn lokast í Evrópu." sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdarstjóri ÍA. "En það verður að segjast alveg eins og er að Igor Pesic stóð ekki undir væntingum hjá okkur. Ef hann hefði gert það hefðum við ekki rift samningi hans við ÍA." sagði Þórður

Þórður sagðist hafa verið þokkalega ánægður með jafnteflið gegn Þrótti á fimmtudaginn. "Ég var nokkuð sáttur með fyrri hálfleikinn en við fengum á okkur jöfnunarmark í upphafi síðari hálfleiks og það sló okkur dálitið út af laginu. En við áttum auðvitað að landa sigrinum eftir að við komumst yfir í 2:1 sjö mínútum fyrir leikslok og klaufaskapur að láta þá jafna á lokamínútunum. En svona er þetta stundum í fótboltanum." sagði Þórður.

Næsti leikur Skagamnna er á laugardaginn gegn Gróttu á Jaðarbakkavelli.



Til baka