Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
26. ágúst 2010

Þróttur 2 : ÍA 2

Skagamenn urðu að láta sér jafntefli duga á Valbjarnavöllum í kvöld þegar Þóttarar jöfnuðu á lokamínútu venulegs leiktíma 2:2. Þá fengu þeir þrjár hornspyrnur í röð og úr þeirri þriðju jafnaði Ingvi Sveinsson með skalli eftir að boltinn fór yfir Pál Gísla í markinu og áttunda jafntefli Skagamanna í sumar staðreynd.

Skagamenn byrjuðu leikinn vel og strax á 9.mínútu náði Gary Martin forystunni þegar hann nýtti sér mistök í vörn heimamanna og skoraði af öryggi. Eins og svo oft áður þá lögðust Skagamenn aftur og Þróttararnir stjórnuðu leiknum á miðjunni og sóittu mun meira án þess að skapa sér hættuleg tækifæri en besta færið í hálfleiknum fekk Gary Martin þegar hann komst einn í gegnum vörn heimanna en markvörður Þróttara varði vel.

Það voru aðeins þrjár mínútur liðnar af síðari halfleik þegar Þróttarar jöfnuðu leikinn þegar Hörður Sigurjón Bjarnason jafnaði með góðu skoti eftir fyrirgjöf. Eftir þetta höfðu Þróttarar undirtökin en Skagamenn vörðust vel. Tvívegis komust leikmenn Þróttar einir innfyrir vörn Skagamanna í fyrra skiptið varði Páll Gísli mjög vel og það síðara skiptið fór boltinn framhjá.

Þegar sex mínútur voru til leiksloka náðu Skagamenn forystunni að nýju eftir mikið einstaklingsframtak hjá Gary Martin. Hann lék á tvo varnarmenn Þróttara og komst upp að endamörkum og lagði boltann út á Arnar Már Guðjónsson sem skoraði af öryggi.

En því miður náðu Skagamenn ekki að halda þetta út og náðu Þróttarar að jafna á lokamínútunum eins og áður sagði.

 



Til baka