25. ágúst 2010
Fréttir úr yngri flokka starfinu
Nú þegar sumarið líður að lokum (þó að nóg sé eftir) er rétt að fara yfir stöðu mála hjá yngri flokkum félagsins sem flestir eru að klára sína leiki eða hafa lokið leikjum sínum á Íslandsmótinu:
2.flokkur kvenna hafir staðið vel undir væntingum í sumar. Stelpurnar eru í 2. sæti í B-riðli 3 stigum frá 1.sætinu og búnar að tryggja sér þátttökurétt í A-riðli á næsta ári. Hafa þær háð mikla baráttu við KR um toppsætið. Stelpurnar unnu enn einn stórsigurinn í gær er þær fóru í tveggja stafa tölu í 10-0 sigri á Álftanesi. Stelpurnar eiga 2 leiki eftir, en síðasti leikur liðsins á tímabilu fer fram á Akranesvelli þann 5.september. Þjálfari liðsins er Ágúst Hrannar Valsson, sem er á sínu 2 ári sem þjálfari í kvennaboltanum. Miklar vonir eru bundnar við stelpurnar í flokknum, en eins og Skagamenn vita þá er ekki gerður út meistaraflokkur kvenna, þar sem að ef þær og félagið halda rétt á spilunum þá munu þær mynda kjarnan í meistarflokki sem áætlað er að starfrækja frá og með sumrinu 2012.
2.flokkur karla hefur staðið sig að margra mati framar vonum þar sem þjáfari liðsins Jón Þór Hauksson þurfti á skömmum tíma að búa til nánast nýtt lið þar sem að 12 strákar gengu uppí meistaraflokk fyrir tímabilið. Strákarnir eru nú í 4. sæti A-deildar og eiga 4 leiki eftir. Vert er að benda á að 2 heimaleikir eru eftir gegn Val þann 1.september og KR þann 14.september.
3.flokkur kvenna berst fyrir sæti sínu í A-riðli, en þær eru nú í 7.sæti, eiga 2 heimaleiki eftir gegn Breiðablik þann 27.ágúst og Þór þann 29.ágúst. En stelpurnar töpuðu síðasta leik sínum sem fór fram á Hlíðarenda á Menningarnótt gegn fyrnasterku liði Vals 5-0. Þannig að það verður mikil baráttu helgi framundan hjá þeim og vitum við að þær munu gera sitt allra besta til enda tímabilið með stæl. Stelpurnar hafa verið óheppnar með úrslit í sumar og tapað mörgum stigum mjög naumlega. Engu að síður tóku þær þátt í alþjóðlegu móti í Danmörku og gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið. Það er Laufey Jóhannesdóttir sem þjálfar stelpurnar og henni til aðstoðar hefur verið Laufey Sig.
3.flokkur karla hefur nú tryggt sæti sitt í B-riðli fyrir næsta ár. Strákarnir unnu öruggan sigur á Grindavík í kvöld 2-0, þar sem Alexander Þorláksson og Fjalar Örn skoruðu mörkin. Fjalar Örn hefur verið mjög iðinn við kolinn í sumar og hefur skorað að meðaltali 2 mörk í leik með 3.flokki sem og 2.flokki. Strákarnir eiga 2 leiki eftir gegn annars vegar ÍR og hins vegar ÍBV. Heiðar Logi þjálfari þeirra er á sínu fyrsta ári sem þjálfari hjá ÍA og hefur hann staðið sig með sóma frá því að hann tók við liðinu í apríl af Jóni Þór Haukssyni sem var með þá í vetur. Margir efnilegir strákar eru í flokknum og voru til að mynda Fjalar Örn og Sindri Snæfells valdir í U-17 ára liðið í sumar, en helst hefur þeim skort líkamsstyrk í baráttunni við önnur lið þar sem að mun fleiri strákar eru á yngra ári í samanburði við önnur lið.
4. flokkur kvenna Enduðu í 3.sæti í A-riðli. Þær unnu verðskuldan sigur á Stjörnunni 3-2 í gær þriðjudag og tryggðu sér þar með farseðill í úrslitakeppnina sem fer fram þann 3.-5.september. Vonir standa til að einhverir leikir úrslitakeppninar fari fram á Akranesvelli. En það eru hin síunga fyrrum landsliðskona Halldóra Gylfadóttir sem þjálfar liðið.
4.flokkur karla er sem stendur í 3.sæti A-riðils og leika hreinan úrslitaleik um 2.sætið á föstudaginn kemur gegn Keflavík á Akranesvelli og hefst leikurinn kl: 17. Strákarnir hafa spilað frábærlega í sumar, undir öruggri stjórn Lúðvíks Gunnarssonar og komust m.a. í úrslit á Rey-cup fyrr í sumar. 4.flokkur tekur einnig þá í keppni B-liða og eru strákarnir þar í 8.sæti.
5.flokkur kvenna hefur átt frekar erfitt ár, þar sem miður frekar fáar stelpur eru að æfa og vel flestar á yngra ári. A liðið endaði í 12. sæti A-riðils en B-liðið í 11.sæti. Við hvetjum allar stelpur sem hafa áhuga á fótbolta að koma og prófa að að æfa, en eins og í öllum flokkum félagsins þá stendur það öllum til boða að prófa að æfa tímabundið án skuldbindinga. Ef kvennaboltinn á Skaganum á að eiga sér viðreisnar von á næstu árum þurfa einfaldlega fleiri stelpur að æfa. Það er gamli landsliðsmarkvörðurinn Steindóra (Dódó) Steinsdóttir sem þjálfar liðið.
5.flokkur karla gekk upp og ofan í sumar. Hópurinn er mjög fjölmennur og voru gerð út 5 lið í flokknum, sem er það mesta hjá félaginu. Kári Steinn Reynisson hefur haft yfirumsjón með 5.flokk í sumar. Þrátt fyrir að hafa ekki náð sér almennilega á strik þá hafa strákarnir sýnt frábæra takta á köflum í sumar. A-lið endaði í 8.sæti, B-liðið í því 6., C-liðið í 11.sæti og D-liðið var með bestan árangur i 5.sæti.
Til baka
|